AFHVERJU BÍLAFORRITUN?
Bílaforritun.is er stoltur samstarfsaðili Tuning Service AS sem eru sérfræðingar í hágæða uppfærslum á hugbúnaði fyrir vélartölvur í faratæki.
Bílaforritun býður upp á þjónustu um land allt fyrir bíla og atvinnutæki.
Sparnaðar uppfærsla
Ecu tune sparnaðar uppfærsla er eingöngu í boði fyrir díselbíla og hefur svo sannarlega slegið í gegn og unnið til margra verðlauna.
Aflauknings uppfærsla
Aflauknings uppfærsla er í boði bæði fyrir bensín og díselbifreiðar. Uppfærslan gefur meira afl og meira tog samanborið við sparnaðarforritun.
Enginn falinn kostnaður
Við gerum þér tilboð og stöndum við það. Ef það kæmi fyrir að útlit væri fyrir aukinn kostnað ertu látinn vita fyrirfram, ekki eftir á.
VISSIR ÞÚ!!!
Ein af ástæðum þess að velja Bílaforritun er að öll endurforritun sem við bjóðum upp á hefur verið hestaflamæld í mælibekk (Rolling Road Dyno) og sannreynd á vegum úti í samskonar bifreið hjá TuningService AS.
Sérsniðinn hugbúnaður
Hvert farartæki fær sérsniðinn hugbúnað að þörfum hvers og eins. Fólk er mismunandi eins og bílarnir, Þannig er hugbúnaðurinn frá okkur líka. Hverjar sem óskirnar eru þá lögum við okkur að þínum þörfum.
Mikil reynsla
Sá fjöldi faratækja sem Bílaforritun hefur uppfært er á sjötta þúsund. Starfsmenn Bílaforritun eru með ólíka reynslu sem gera teymið enn sterkara.
Myndband frá samstarfsaðila okkar Tuningservice.no
Fengum Skúrinn í heimsókn til okkar
Flotasamningar fyrir fyrirtæki
Starfsmenn
Arnar Eyberg
Eigandi
Arnar hefur haft bílaáhugann með sér frá unga aldri og byrjaði að vinna við bíla aðeins 12 ára gamall. Síðan þá hefur hann safnað sér mikilli reynslu á sviði bílaviðgerða, bilanagreiningar og forritunar og má segja að fátt bílatengt fari fram hjá honum. Í dag fæst Arnar aðallega við að forrita og laga bíla, en áhuginn nær töluvert lengra. Hvort sem um er að ræða vélar, rafmagn, tölvukerfi eða eitthvað sem enginn annar skilur almennilega, þá er Arnar yfirleitt fljótur að finna leið til að komast að því hvað er að.
Ef Arnar væri ofurhetja væri hann líklega AddiBlue – maðurinn sem mætir þegar bíllinn er kominn með fleiri villuboð en hestöfl. Það sem byrjaði sem áhugi hjá 12 ára strák hefur því þróast í ástríðu og starf. Og þó Arnar sé búinn að vinna við bíla í yfir tvo áratug, þá er enn jafn líklegt að hann stoppi við bíl á bílastæði og hugsi: „Hvað ætli sé nú hægt að gera við þennan?“
Bílar eru ekki bara vinnan hans – þeir eru svolítið of mikill hluti af persónuleikanum.
Sigurjón Guðnason
Starfsmaður
Sigurjón hefur haft mikinn áhuga á bílum frá unga aldri og á að baki fjölda ára reynslu í bílaviðgerðum. Hann hefur lokið námi í bifvélavirkjun og sameinar þannig trausta fræðilega þekkingu og víðtæka verklega reynslu í starfi. Fagmennska, nákvæmni og ástríða fyrir faginu einkenna vinnubrögð Sigurjóns.
Fólksbílar
Trukkar
Viðskiptavinir
Hér er hægt að sjá dæmi um nokkra af viðskiptavinum Bílaforritunar
Ekki hika við að hafa samband
Það er aldrei að vita hvað endurforritun getur gert fyrir þinn bíl, þannig að ekki hika og sendu okkur línu!
Stekkjabakki 6 | 109 Reykjavík


